Árgangur 2002
Bekkjarsíður
11.06.2007 20:00:47 / ma2002

4 dagar í óvissuferð!!!

Nú eru vonandi allir búnir að borga sem ætla að koma með í óvissuferðina! Ef ekki þá hafiði nokkrar klukkustundir í viðbót ;) Mætingin er gríðargóð og lofum við rosa stemmningu allan daginn og fram á nótt. Ef einhverjir slúbbertar eiga ennþá eftir að borga en ætla að koma með þá endilega hafið samband sem allra allra allra fyrst við nefndarmann í ykkar bekk.

 

Við ætlum að fara yfir dagsskrána einu sinni enn svo allir séu með þetta á hreinu.

 

-Mæting á MA planið kl.14:00 þann 15.júní.

 

-Klæðið ykkur eftir veðri, við verðum eitthvað úti en ef það verður óveður þáhöfum við plan b og getum verið inni. Við endum á skemmtistað á Akureyriog þá geta þeir sem vilja farið heim og dressað sig upp, annars þarf maður

ekkert endilega að vera uppstrílaður þetta kvöld.

 

-Munið að við viljum helst að hver og einn bekkur sé með sitt einkenni

(það er ykkar að áhveða hvað það er) og ekki  væri verra ef hver bekkur kæmi með skemmtiatriði

 

-Allir verða að koma með eigin drykkjarföng, takið því með ykkur það semþið ætlið að drekka frá kl.14-22 (og eina kippu í viðbót… bara til öryggis

;))

 

-Matur fyrir daginn er innifalinn í verði og því ekki nauðsynlegt á að

taka neitt matarkyns með sér.

 

Annað þurfið þið ekki að koma með :)

 

Eins og áður sagði þá endum við innan bæjarmarka Akureyrar og því er ekkiþörf á neinum búnaði vegna gistingar eða neitt slíkt. Við endum ferðina á

skemmistað og þegar þið gangið þar inn er ferðinni lokið :)

 

 

Svo viljum við  minna fólk enn og aftur á panta skal miða á 16.júní hátíðina í Höllinni

á www.bautinn.is. Inn á  http://ma1982.blog.is/blog/ma1982/about/ sjá matseðil og dagsskrá fyrir kvöldið. Hægt verður að nálgast pantaða miða í Höllinni 15. og 16. júní kl.13-17.  

 

Ekki gleyma svarta kollinum!

 

Ef það eru einhverjar spurningar getiði kommentað hér eða sent okkur tölvupóst eða jafnvel bara hringt, erum flest í símaskránni ;) 

Skemmtið ykkur vel á bekkjarkvöldunum. Hlökkum alveg rosalega mikið til að sjá ykkur!!!

 

Nefndin


» 12 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 20:23:16 / ma2002

Deadline!!!

Bara láta vita að það þurfa allir að vera búnir að borga fyrir 11. júní. Látið það endilega berast.

Sjáumst fljótlega

Nefndin 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 11:24:59 / ma2002

Allir að borga.....

Hæ hæ allir!

Ég er búin að stofna reikning sem þið getið nú lagt inn á. Ég vil að sjálfsögðu hvetja alla til að borga sem fyrst. Við reyndum auðvitað að draga sem mest úr kostnaði og vonum að allir séu sáttir.

Verðið er sem sagt 3600kr.

Kt. 090882-4149

0162-05-269643

 

Kveðja Rannveig 


» 15 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 22:46:54 / ma2002

Styttist og styttist!

Nú er kominn tími til að endurlífga þessa síðu því nú eru bara rétt þrjár vikur í hátíðarhöldin!!! Þið sem enn kíkið hérna inn megið láta það ganga að kíkja hér inn því nú fara að koma mikilvægar upplýsingar ;) 

 

14.júní – Bekkjarkvöld

-Mælum með því að hver bekkur hittist og geri eitthvað skemmtilegt saman

-Hver bekkur undirbúi bekkjareinkenni til að koma með í óvissuferðina (borða, kórónur, liti eða eitthvað slíkt) 

 

15.júní – Allur árgangurinn í óvissuferð!

-Mæting á MA plan kl.14:00. Mikilvægt að allir mæti tímanlega :haha:

-Verð 3600kr. Reikningsnúmer kemur fljótlega og þá má endilega byrja að borga!

-Matur skaffaður (kaffitími og kvöldmatur) en hver að koma með eigin drykki (og nóg af þeim ;))

-Endum á skemmtistað á Akureyri um kvöldið og áframhaldandi djamm fram á nótt 

 

16.júní – Stóra hátíðin í Höllinni með öllum afmælisárgöngum

-nákvæm tímasetning ekki komin

-miðapöntun á http://www.bautinn.is/ undir =>MA hátíð 

 

 

 

Karen í T-bekknum ætlar svo að sjá um að gera gjöfina fyrir skólann :)

 

 

 

Látið nú heyra í ykkur!! :haha:

 

 

Nefndin


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 09:19:41 / ma2002

Langar að benda á eftirfarandi...

http://ma1982.blog.is/blog/ma1982/

 Rakst á þetta og gott að minna á þetta.

Anna Kristín 4.U


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 22:38:13 / ma2002

Allt að gerast!

Hæ allir :haha: 

Vildum bara láta ykkur vita að skipulagningin er komin á fullt skrið! Ætlum að taka almennilega á því þessa helgi og hvetjum hvern bekk til að vera með bekkjarpartí fimmtudaginn 14.júní, svo er stefnan sett á að allur árgangurinn skelli sér í óvissuferð föstudaginn 15.júní og svo verður kátt í Höllinni á 16.júní.

 

 Í skipulagsnefndinni eru:

Það væri fínt að fara að fá sirka fjöldann sem ætlar að mæta 15.júní þannig að endilega látið ykkar bekkjarfulltrúa vita hver staðan er á ykkur, svo við getum farið að bóka allt sem þarf að bóka ;) 

Okkur langar til að biðja ykkur að leggja aðeins hausinn í bleyti og hugsa um hver gæti verið með skemmtiatriði fyrir okkar hönd á hátíðinni 16.júní, býður einhver sig fram? :D 

Látum heyra í okkur síðar :haha: 

Kv. nefndin


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 10:57:03 / ma2002

Styttist

Þeir sem hafa boðið sig fram, ættu að láta email fylgja.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 13:54:36 / ma2002

Gmail

Enn vantar fullt af fólki inn á, þess vegna hef ég búið til gmail og sett alla á póstlista þar,
ef þið þekkið meilinn hjá einhverjum aðilum, endilega bætið þeim við og svo er hægt að flokka fólkið í bekki að auki.
 
Gmailið okkar er MAutskrift2002@gmail.com
Vonandi nýtist þetta þannig að sem flestir geti tekið þátt í þessum viðburði og vona ég að þið  njótið þess.
Ég mun ekki koma meira að þessu að neinu leyti héðan í frá þar sem ég býst ekki við að koma.
Ég vona líka að þetta komi ykkur í gang og einhverjir framsæknir bjóði sig fram til að skipuleggja þetta.
 
Hafið það sem allra best.
 
Kveðja Anna Kristín Sigursteinsdóttir
 
ps. látið orðið berast ennfrekar

» 23 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 09:47:33 / ma2002

Allt að byrja

Jæja fólk, þá er um að gera að skrá sig eða heimasíðuna sína hérna.

Látið orðið berast eða hafið samband

tinasimalina@hotmail.com">stinasimalina@hotmail.com

Anna Kristín


» 43 hafa sagt sína skoðun


Ni�?�?�?�??�?�??�?°urtalning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1715 dögum